Í skráningunni hér fyrir neðan er mikilvægt að fylla út alla reitina.
Það sem þú þarft að senda inn er:
Mynd af þér
Myndband þar sem þú:
a. Segir frá þér – hvaðan þú kemur, hvað þú gerir, bakgrunnur í tónlist, hvort þú spilar á hljóðfæri og annað sem væri áhugavert að segja frá.
b. Syngur 2 stutta lagabúta um 40 sekúndur hver. Við hvetjum þig til þess að láta ljós þitt skína með ólíku lagavali
Það er í góðu lagi að senda inn fleiri myndbandaskrár en eina en við ætlumst þó til þess að send séu inn myndbönd en ekki eingöngu hljóðskrár.